Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Samið við Borgarverk um Kirkjuveginn á Selfossi

Samið við Borgarverk um Kirkjuveginn á Selfossi

418
0
Horft niður eftir Kirkjuvegi frá gatnamótunum við Eyraveg. Mynd: sunnlenska.is/Helga R. Einarsdóttir

Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum í morgun að taka tilboði Borgarverks ehf. í endurnýjun Kirkjuvegar á Selfossi og mun bæjarstjórn samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun vegna málsins.

<>

D.Ing-verk ehf í Garðabæ bauð lægst í verkið, rúmar 132,9 milljónir króna en félagið uppfyllti ekki hæfnisskilyrði sem tilgreind voru í útboðsgögnum.

Tilboð Borgarverks hljóðaði upp á 142,4 milljónir króna en bæði tilboðin voru talsvert yfir kostnaðaráætlun verkfræðistofunnar Eflu sem er rúmar 108,6 milljónir króna.

Verkið felur í sér endurgerð Kirkjuvegar, þ.e. jarðvegsskipti götu, endurnýjun stofnlagna fráveitu, vatnsveitu og hitaveitu, ásamt lagningu ídráttarröra fyrir Mílu og HS-veitur og lagningu vatnsveitu í gangstétt Eyravegar frá Tryggvatorgi að Kirkjuvegi.

Verkinu á að vera lokið þann 15. ágúst næstkomandi.

Heimild: Sunnlenska.is