Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Suðursvæði 2017.
Helstu magntölur eru:
- – Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar 318.583 m2
- – Flutningur steinefna 4.142 m3
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 20. mars 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. apríl 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.