Home Fréttir Í fréttum Borgin úthlutar lóðir til íbúðafélags ASÍ og BSRB

Borgin úthlutar lóðir til íbúðafélags ASÍ og BSRB

106
0
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags. Mynd: REYKJAVÍKURBORG

Reykjavíkurborg hefur gengið frá úthlutun lóða til Bjargs íbúðafélags sem rekið er án hagnaðarmarkmiða, en félaginu er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að ódýru, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði. Stofnendur félagsins eru ASÍ og BSRB.

<>

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að úthlutun byggingarréttar er á þremur stöðum í borginni:

  • Í Spönginni í Grafarvogi við Móaveg 2-4, en í nýju skipulagi Spangarinnar er gert ráð fyrir 120 íbúðum í sjö sjálfstæðum eins til fjögurra hæða byggingum sem raðast kringum miðlægan garð.
  • Í Úlfarsárdal við Urðarbrunn 33-35 og 130-134.  Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir 53 íbúðum í tveimur sjálfstæðum byggingum.
  • Á Kirkjusandi við Hallgerðargötu er gert ráð fyrir 63 íbúðum á lóðum G og  H.

„Íbúðir Bjargs verða svokölluð leiguheimili og byggja á nýjum húsnæðislögum um almennar íbúðir og verða leigðar út til fólks með lágar- og meðaltekjur. Að sögn Björns Traustasonar framkvæmdastjóra Bjargs verður lögð áhersla á hagkvæmni í byggingu, rekstri, endingu og góða nýtingu á rýmum, án þess að það verði á kostnað gæða.

Við uppbygginguna verður horft til hugmynda um Nýju Reykjavíkurhúsin um félagslega blöndun,  íbúalýðræði og hönnun. Miðað er við að Félagsbústaðir Reykjavíkurborgar eignist eða fái til úthlutunar að jafnaði 10-20% íbúða í uppbyggingarverkefnum. Íbúðir á skipulagssvæðunum eru fyrir fjölbreyttan hóp íbúa og eru misstórar,“ segir í tilkynningunni.

Borgin úthlutar lóðir til íbúðafélags ASÍ og BSRB

YRKI ARKITEKTAR

Lóðaúthlutunin byggir á grunni viljayfirlýsingar sem Reykjavíkurborg og ASÍ gáfu út fyrir ári. Stefnir borgin að því að úthlutað verði lóðum fyrir uppbyggingu 1.000 almennra íbúða (leiguíbúða) á grundvelli laga frá Alþingi sem jafnframt feli í sér stofnframlag Reykjavíkurborgar til uppbyggingarinnar í samræmi við ákvæði laganna.

Áætlunin var þessi:

  • árið 2016 verði úthlutað lóðum fyrir 150 íbúðir
  • árið 2017 verði úthlutað lóðum fyrir 250 íbúðir
  • árið 2018 verði úthlutað lóðum fyrir 300 íbúðir
  • árið 2019 verði úthlutað lóðum fyrir 300 íbúðir.

Heimild: Visir.is