Vegagerðin óskar eftir tilboðum í hjólfarafyllingar og axlaviðgerðir með flotbiki og kaldbiki á Suðursvæði og Norðursvæði á árinu 2015.
Helstu magntölur eru:
Flotbik 2.140 tonn
Kaldbik 2.720 tonn
Útlögn flotbiks 64.900 m2
Útlögn kaldbiks 24.700 m2
Verki skal að fullu lokið 1. ágúst 2015.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi , Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 21. apríl 2015. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. maí 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.