Home Fréttir Í fréttum Uppbygging á nýju fimleikahúsi verður líklegast við Vesturgötu á Akranesi

Uppbygging á nýju fimleikahúsi verður líklegast við Vesturgötu á Akranesi

150
0
Mynd: Skagafréttir.is

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar leggur það til við bæjarráð að horft verði til uppbyggingar á fimleikahúsi við hlið núverandi íþróttahúss við Vesturgötu. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs frá 2. mars s.l.

<>

Bæjarráð hefur samþykkt að vísa tillögu skipulags- og umhverfisráðs til umsagnar skóla- og frístundaráðs. Einnig verði niðurstöður varðandi skoðun á jarðvegi á svæðinu sendar ráðinu til upplýsinga þegar þær liggja fyrir.

Heimild: Skagafréttir.is

Previous article04.04.2017 Fjarðabyggð – Mjóeyrarhöfn, fylling undir stálþil
Next articleHús rís á einum sólarhring á Sauðárkróki