Home Fréttir Útboð 22.03.2017 Reykjavíkurborg Sandskipti 2017 -austur (hverfi 4 -5)

22.03.2017 Reykjavíkurborg Sandskipti 2017 -austur (hverfi 4 -5)

106
0
Mynd: Reykjavik.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Sandskipti 2017 – Austur  (Hverfi 4 – 5). Útboð nr. 13872

Verkið sem hér um ræðir er að skipta um sand í sandkössum sumarið 2016 á stofnanalóðum í hverfum 4 og 5 á vegum Reykjavíkurborgar. Hverfaskipting miðast við hverfasskiptingu borgarinnar hjá Umhverfis-og skipulagssviði.
Samtals er um að ræða um 47 stofnanalóðir með samtals 91 sandkassa og er heildarflatarmál þeirra um 3.400 m².

Útboðsgögn á USB lykli fást afhent frá mánudeginum 6. mars 2017,  í afgreiðslu þjónustuvers Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: Miðvikudaginn 22. mars 2017, kl. 10:00, í Borgartúni 12-14, Reykjavík. Tilboðum skal skilað í þjónustuver.