Home Fréttir Í fréttum Byggingarframkvæmdir hafnar í Suðurfjörunni á Húsavík

Byggingarframkvæmdir hafnar í Suðurfjörunni á Húsavík

158
0

Byggingarframkvæmdir eru hafnar í Suðurfjörunni og er það Trésmiðjan Rein sem ríður á vaðið.

<>

Að sögn Ragnars Hermanssonar hjá Rein er um að ræða stálgrindarhús að Fiskifjöru 1 sem klætt verður með yleiningum.

Húsinu verður skipt í fimm bil og eru þau öll frátekin.

“það er að ljóst að þörf virðist vera fyrir svona húsnæði í bænum því öll bilin eru frátekin og við hjá  Trésmiðjunni Rein farin að huga að næstu byggingu.

Hún mun rísa á næstu lóð sunnan við, eða Fiskifjöru 3 og er þar einnig um að ræða stálgrindarhús sem verður skipt niður í bil.

Fiskifjara 3 er ennþá á hönnunarstigi og því ekki ljóst hversu stór bilin verða”. Segir Ragnar og bætir við að menn séu strax farnir að sýna áhuga með kaup í huga.

Heimild: 640.is