5.2.2017
Hafnarsjóður Fjallabyggðar óskar eftir tilboð í ofangreint verk.
Helstu verkþættir eru:
- · Jafna yfirborð undir þekju og malbik, 7.200 m2
- · Leggja frárennslislagnir, um 200 m.
- · Steypa þekju, um 3.600 m2
- · Malbikun, um 3.600 m2
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2017.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24 á Siglufirði, frá og með þriðjudeginum 7. febrúar 2017. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 6. mars 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.