Home Fréttir Í fréttum 21.02.2017 Austurbæjarskóli, endurnýjun á þaki 2017

21.02.2017 Austurbæjarskóli, endurnýjun á þaki 2017

210
0
Reykjavík.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Austurbæjarskóli, endurnýjun á þaki 2017. Útboð nr. 13854.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 8:30 miðvikudaginn 1. febrúar 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is

Nauðsynlegt er að nota  Internet Explorer.

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  Kl. 10:30 þriðjudaginn 21. febrúar 2017.

Verkið felst í:
Verk þetta nær til viðgerða og endurbóta á þaki Austurbæjarskóla, þ.e. norðurálmu skólans. Verksvæði afmarkast við suðurþekju norðurálmu. Verkið felst í endurnýjun á koparklæðningu, borðaklæðningu og þakpappa, sem og þakgluggum, þaktúðum, þakháf, snjógrindum, þakrennum og þakniðurföllum. Jafnframt er um að ræða endurbætur á útloftun.

Helstu magntölur eru:

 Verkþáttur: Ein.:  Suðurþekja:
 Rif og förgun m2  175
 Endurnýjun borðaklæðningar m2  20
 Þakpappi m2  175
 Asfaltdúkur m2  175
 Læst koparklæðning m2  175
 Þakrennur m  25
 Þakniðurföll m  20
 Þakgluggar stk  7
 Þakháfur stk  1
 Snjógrind m  25

Verktími er 12. júní til 18. ágúst 2017.