Home Fréttir Í fréttum Byggja hótel á Sjallareitnum á Akureyri

Byggja hótel á Sjallareitnum á Akureyri

105
0
Séð yfir Sjallann á Akureyri. Mynd/Hörður Geirsson.

Íslandshótel hafa samið við arkitektastofuna Kollgátu um hönnun á hóteli í miðbæ Akureyrar á reit sem kenndur er við Sjallann.

<>

Í tilkynningu frá Íslandshótelum kemur fram að hótel verði með allt að 120 herbergjum en hótelið verður rekið undir nafni Fosshótela. Við opnun hótelsins verða til 40 til 50 stöðugildi. Framkvæmdin fer fram í tveimur áföngum og er stefnt að því að þeim fyrri verði lokið árið 2018. Byrjað verður á því að byggja við Sjallann en húsið verður síðan rifið.

„Eins og fram hefur komið þá keyptu Norðureignir ehf, sem er dótturfélag Íslandshótela, Sjallann og þann byggingrétt sem fylgir eigninni í fyrra.   Unnið er að hönnun hótelsins í góðu samstarfi við bæjaryfirvöld og verða fyrstu drög kynnt fljótlega. Þar sem um mikilvæga byggingu er að ræða verður í hönnun hússins  tekið mið af sögu Sjallans,“ segir í tilkynningu Íslandshótela en hana má sjá í heild sinni hér að neðan.

Íslandshótel hafa samið við arkitektastofuna Kollgátu um hönnun á allt að 120 herbergja hóteli í miðbæ Akureyrar á reit sem kenndur er við Sjallann. Hótelið mun verða rekið undir nafni Fosshótela.
 
Eins og fram hefur komið þá keyptu Norðureignir ehf, sem er dótturfélag Íslandshótela, Sjallann og þann byggingrétt sem fylgir eigninni í fyrra.  Unnið er að hönnun hótelsins í góðu samstarfi við bæjaryfirvöld og verða fyrstu drög kynnt fljótlega. Þar sem um mikilvæga byggingu er að ræða verður í hönnun hússins  tekið mið af sögu Sjallans.
 
Það er mikill vaxtarbroddur í ferðamennsku á Norðurlandi en spáð hefur verið allt að 20% fjölgun ferðamanna á þessu ári. Íslandshótel taka þátt í uppbyggingunni á svæðinu og sem dæmi var Fosshótel Húsavík nýlega endurbætt verulega og er nú orðið að stærsta ráðstefnuhóteli Norðurlands. Þessi gríðarlega aukning ferðamanna fyrir Norðan hefur aðallega verið yfir sumartímann en vetrarferðamennskan hefur átt erfiðara uppdráttar. Líklegt er að auknar flugsamgöngur, opnun á Vaðlaheiðargöngunum og Demantshringnum árið 2018 muni verða til þess að Norðurlandið verði eftirsóttur kostur fyrir ferðamenn yfir verartímann. Íslandshótel eru að leggja sitt að mörkum til að efla Norðurlandið sem áfangastað allt árið. Fyrirhugað að hið nýja hótel verði að hluta skíðahótel sem mun án efa hafa jákvæð áhrif á vetrarferðir fyrir landssvæðið en Norðurlandið býður upp á mestan fjölda af skíðasvæðum á Íslandi.
 
Framkvæmdin, sem verður í höndum Beka ehf, fer fram í tveimur áföngum þar sem þeim fyrri verður lokið 2018. Bygging hótelsins mun verða góð innspýting fyrir vinnumarkaðinn á Akureyri þar sem mikill fjöldi mun starfa við framkvæmdina sjálfa auk þess sem við opnun hótelsins munu verða til um 40-50 starfsgildi.

Heimild: Visir.is