F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Hlíðarendi, jarðvinna 4. áfangi. Útboð nr. 13841.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá þriðjudeginum 17. janúar 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nauðsynlegt er að nota Internet Explorer.
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 miðvikudaginn 1. febrúar 2017.
Verkið felst í:
Jarðvegsskipti fyrir borgargötur á Hlíðarendareit. Í götustæðinu liggur aflögð steypt flugbraut sem þarf að rífa upp. Um er að ræða 4. áfanga í uppbyggingu að Hlíðarenda.
Helstu magntölur eru:
Gröftur | 72.000 m3 |
Undirfylling | 42.000 m3 |
Burðarfylling | 1.800 m3 |