13.1.2017
Hafnarstjórn hafna Ísafjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir eru:
- Jarðvinna, upptekt, endurröðun og fylling um 1.000 m³
- Reka niður 18 stk. tvöfaldar stálþilsplötur og ganga frá stögum.
- Smíði og uppsetning stálvirkis um 2.950 kg
- Steypa í viðlegustöpul og landfestar um 165 m³
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júlí 2017.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku) og á hafnarskrifstofu Ísafjarðarhafna,
Hafnarhúsinu, Ásgeirsbakka á Ísafirði, frá og með mánudeginum 16. janúar 2017. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. janúar 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.