Home Fréttir Í fréttum Vill byggja 20 íbúða fjölbýlishús á Blönduósi

Vill byggja 20 íbúða fjölbýlishús á Blönduósi

253
0
Mynd: Húni.is

Vill byggja 20 íbúða fjölbýlishús á Blönduósi

<>

Bæjarráði Blönduósbæjar hefur borist fyrirspurn, frá einkahlutafélaginu Uppbyggingu, um lóð á Blönduósi sem afmarkast af Húnabraut 4, austurenda íþróttavallar, Holtabrautar og Melabrautar. Óskar fyrirtækið eftir að fá að byggja 20 íbúða fjölbýlishús á fimm hæðum og er áætlað að verktími standi frá vori 2017 til vors 2018. Byggðarráð fagnar erindinu.

Uppbygging ehf. er í eigu Engilberts Runólfssonar byggingaverktaka. Engilbert rak á árum áður fyrirtækið Stafna á milli sem keypti m.a. eitt umsvifamesta byggingafélag landsins Ris ehf. árið 2007. Ris varð gjaldþrota 2010 en um 330 störfuðu hjá fyrirtækinu þegar mest lét.

Fyrirspurnin frá Uppbyggingu ehf. var tekin fyrir á fundi byggðarráðs síðastliðinn föstudag. Byggðaráð fagnar erindinu og þakkaði auðsýndan áhuga á uppbyggingu á Blönduósi. Sveitarstjóra og tæknideild var falið að vinna frekar að málinu.

Heimild: Huni.is