GAMLA HÖFNIN – NORÐURGARÐUR 2, 2 ÁFANGI – BYGGING HAFNARBAKKA 2017
Verkið felst m.a. í að reka stálþil, ganga frá stögum og ankerum, rífa núverandi trébryggju, fylla inn fyrir þil, steypa kantbita, leggja lagnir og steypa yfirborð bakka.
Helstu magntölur eru:
Rekstur stálþils: 120 m
Stög og ankerisplötur: 42 stk.
Fyllingarefni: 28.000 m3
Regnvatnslagnir: 200 m
Ídráttarrör fyrir rafstrengi: 2.000 m
Snjóbræðsla: 4.000 m
Steypt þekja: 4.000 m
Malbik: 400 m
Útboðsgögn verða afhent án gjalda á stafrænu formi með að senda beiðni með nafni bjóðanda, símanúmeri og nafns tengiliðs á netfangið sigurdurgj@mannvit.is. Einnig er hægt að sækja gögnin á pappír endurgjaldslaust á skrifstofu Mannvits, Urðarhvarfi 6, 203 Kópavogi frá og með þriðjudeginum 13. desember.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Faxaflóahafna, Hafnarhúsinu Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík fimmtudaginn 12.janúar 2017, kl. 11:00.