Home Fréttir Í fréttum 60 ára gömul tré rifinn niður vegna framkvæmda við Sundlaug Akureyrar

60 ára gömul tré rifinn niður vegna framkvæmda við Sundlaug Akureyrar

224
0
Mynd: Ruv.is

Sextíu ára gömul tré sem stóðu meðfram Þingvallarstræti á Akureyri hafa verið felld vegna framkvæmda við endurbætur á Sundlaug Akureyrar sem nú standa yfir. Pétur Halldórsson hjá Skógræktinni segir málið alvarlegt. „Þarna voru felld sextíu ára gömul tré án þess að um það yrði nein umræða. Ég veit ekki til þess að nágrannarnir hafi verið spurðir, hvað þá óbreyttir bæjarbúar. Þessi tré veittu mikið skjól og gerðu svæðið mjög hlýlegt. Svona gömul tré verða ekki endurheimt nema bíða í önnur sextíu ár,” segir Pétur.

<>

Heimild: Vikudagur.is