Vegagerðin óskar eftir tilboðum í blettanir með klæðingu á Suðursvæði og Austursvæði á áunum 2017 og 2018.
Helstu magntölur:
•Blettun (k1) útlögn á Suðursvæði 109.500 m2 hvort ár
•Blettun (k1) útlögn á Austursvæði 74.200 m2 hvort ár
Verki skal að fullu lokið 1. september 2018.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 11 – 13 á Reyðarfirði, Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudaginn 8. nóvember 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðudaginn 29. nóvember 2016 og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.