Home Fréttir Í fréttum Vilja byggja 74 íbúðir við Hafnargötu í Keflavík

Vilja byggja 74 íbúðir við Hafnargötu í Keflavík

243
0
Reykjanesbær

Hrífufang ehf., eigandi húseignarinnar og lóðarinnar við Hafnargötu 12 hefur óskað eftir afstöðu Reykjanesbæjar til byggingar 74 íbúða í þriggja hæða fjölbýlishúsi með bílakjallara á lóðinni.

<>

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar tók málið fyrir á fundi sínum í vikunni og veitti Hrífufangi heimild til að gera tillögu að breytingu á gildandi deiluskipulagi á sinn kostnað og leggja fyrir ráðið til frekari umfjöllunar. Ráðið lagðist þó gegn því að byggingar á lóðinni verði hærri en þrjár hæðir.

Heimild: sudurnes.net