Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram frumvarp um að Reykjavíkurflugvöllur skuli starfræktur í Vatnsmýri í Reykjavík. Þá verði ráðherra veitt heimild til að taka eignarnámi land sem nauðsynlegt sé til að framkvæma lögin.
Skjal sem sýnir þetta birtist á vef Alþingis síðdegis í dag.
Segir í frumvarpinu að á vellinum skuli enn fremur vera þrjár malbikaðar flugbrautir, auk aðstöðu fyrir farþega í innanlandsflugi og einka- og kennsluflug.
Þá eiga lögin að ganga framar ákvæðum almennra laga, svo sem skipulagslaga og loftferðalaga, að því er segir í 3. grein frumvarpsins.
Afdrif frumvarpsins óljós
Í greinargerð er tilgangur frumvarpsins sagður vera að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi, „í því horfi sem hann hefur um árabil verið í Vatnsmýri í Reykjavík þar til Alþingi ákveður annað.“
Flugvöllurinn gegni lykilhlutverki sem miðstöð innanlandsflugs og hafi verulega þýðingu fyrir samgönguöryggi landsmanna. Þá sé hann afar mikilvægur fyrir sjúkraflug með sjúklinga af landsbyggðinni á Landspítalann.
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra lagði fyrr í dag fram tillögu að þingsályktun þess efnis að fundum þingsins verði frestað frá 13. október, eða síðar ef nauðsyn krefði.
Afdrif þessa frumvarps sem, eins og lagafrumvörp yfirleitt, á eftir að ganga í gegnum þrjár umræður, nefndarálit og breytingatillögur, eru því óljós.
Heimild: Mbl.is