Jarðvinna og lagnakerfi, FTTH Lindir 1. áfangi
Verk þetta nær til jarðvinnu og fullnaðarfrágangs lagnakerfis gagnaveitu frá tengistöðvum að inntakskassa ásamt frágangi yfirborðs lagnaleiða í Lindarhverfi í Kópavogi.
Verkið er nánar skilgreint í útboðsgögnum GRV 2015-04.
Verklok eru 31. júlí 2015.
Tilboð verða opnuð hjá Gagnaveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, þriðjudaginn 21. apríl 2015, kl. 11:00.