Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 22.04.2026 „Hreinsistöðin við Geitanes – fullnaðarfrágangur“.

22.04.2026 „Hreinsistöðin við Geitanes – fullnaðarfrágangur“.

149
0
EFLA (©Map.is).

Fasteignafélag Árborgar slf óskar eftir tilboðum í framkvæmdaverkið: „Hreinsistöðin við Geitanes – fullnaðarfrágangur“.

Verk þetta felur í sér fullnaðarfrágang hreinsistöðvarinnar, uppsetningu vélbúnaðar og lagna ásamt helstu húskerfum. Nú þegar hefur uppsteypa átt sér stað. Þá skal koma fyrir gönguleiðum úr heitgalvaníseruðu stáli samkvæmt teikningum, setja upp vatnsþétta hurð milli þurrrýmis og votrýmis, setja upp lúgu og brunastiga. Að utan skal klára allan frágang útveggja, hurða og glugga. Fullnaðarfrágangur töflurýmis er innifalinn ásamt loftræsirými og lífsíu (e. biofilter).

Helstu áætlaðar magntölur eru:

  • Útveggjaklæðning                      507 m²
  • Þakfrágangur                            304 m²

Verkinu skal að fullu lokið 30. desember 2026.

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 miðvikudaginn 22. apríl 2026.

Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér