Home Fréttir Í fréttum Milljarður til viðbótar í að breikka brýr

Milljarður til viðbótar í að breikka brýr

120
0
Mynd: Ruv.is

Fjárveiting til að breikka eða skipta út einbreiðum brúm verður aukin um milljarð frá upphaflegu frumvarpi að samgönguáætlun, samkvæmt tillögum stjórnarflokkanna. Innanríkisráðherra segir fjármagn aukið töluvert í vegakerfið í heild en stjórnvöld viti þó að það verði að gera betur.
39 einbreiðar brýr eru á hringveginum í dag en fimm þeirra hverfa á næstu fjórum árum. Fram kom í fréttum í gær að ef fyrirhuguð fjárveiting í að breikka þær stæði í stað tæki það tæp 50 ár.

<>

Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir það ekki hljóma vel, en til stendur að bæta úr því. „Núna erum við að setja milljarð í að fækka einbreiðum brúm, erum að bæta verulega í. Síðan sjáum við fram á eina stóra framkvæmd við Hornafjörð, við þekkjum að það eru stórar einbreiðar brýr þar, sem verður til þess að við losnum við nokkrar slíkar í leiðinni. En auðvitað vitum við það að tíminn sem það tekur að gera vegakerfið á þann hát sem við viljum hafa það er því miður langur.“

Milljarðurinn sem Ólöf minnist á er í tillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar sem lögð var fram í gær. Samkvæmt henni hækkar fjármagn í breikkun brúa um milljarð á næstu tveimur árum.

Ólöf segir að vegakerfið sé í því horfi að það verði að bæta meira í og þegar séu uppi áætlanir um að gera það. „Við aukum 16% við vegafé á næsta ári í þeim tillögum sem eru fyrir þinginu núna þannig að það er mikilvægt, en við vitum að það þarf að gera miklu betur.“

Umræðan um vegbætur hefur orðið háværari eftir helgina, þegar tvö banaslys urðu á þjóðvegum landsins, þar af annað á hringveginum. „Við getum að minnsta kosti sagt að þau vekja mann sannarlega til umhugsunar um það sem er að gera í þjóðvegakerfinu,“ segir Ólöf.

Heimild: Ruv.is