Home Fréttir Í fréttum Rangárljós hefur samið við Þjótanda, sem bauð lægst í lagningu ljósleiðara

Rangárljós hefur samið við Þjótanda, sem bauð lægst í lagningu ljósleiðara

160
0
Ágúst og Ólafur handsala samninginn. Ljósmynd/Rangárþing ytra

Rangárljós hefur samið við Þjótanda, sem bauð lægst í lagningu ljósleiðara í Rangárþingi ytra og gerir áætlun ráð fyrir að vinna við verkið hefjist í lok þessarar viku.

<>

Samningurinn hljóðar upp á 306 milljónir króna og gerir ráð fyrir að ljósleiðari verði lagður í einum samhangandi áfanga um allt sveitarfélagið á næstu mánuðum, en gert er ráð fyrir að verkinu ljúki næsta vor.

Þjótandi hefur mikla reynslu af sambærilegum verkefnum sem öll hafa gengið með farsælum hætti.

Það voru þeir Ólafur Einarsson hjá Þjótanda og Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra sem rituðu undir samninginn að viðstöddum Jóni Sæmundssyni hjá Verkís sem var umsjónarmaður með útboðinu, Sævari Eiríkssyni eftirlitsmanni og Klöru Viðarsdóttur fjármálastjóra sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra staðfesti síðan þennan samning á fundi sínum þann 14. september. Sveitarstjórn staðfesti jafnframt að ganga að lægstu tilboðum í kaup á efni til verksins en heildarkostnaður við alla efnisliði er 94,3 milljónir króna.

Heimild: Sunnlenska.is