Félagið var á sínum tíma áberandi í íslensku viðskiptalífi og tengdist stórum fasteigna- og fjárfestingaverkefnum bæði hér heima og erlendis.
Skiptum á Icarus, áður Saxbyggi, er lokið nær sautján árum eftir gjaldþrot. Almennar kröfur námu tæpum 13 milljörðum en fengust aðeins greiddar að litlum hluta.
Skiptum á þrotabúi Icarus ehf., áður Saxbygg ehf., er nú lokið, tæpum sautján árum eftir að félagið var tekið til gjaldþrotaskipta.
Samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu námu almennar kröfur í búið tæpum 13 milljörðum króna, en upp í þær fengust aðeins greiddir 1,86 milljarðar, eða 14,34%.
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 15. maí 2009 var bú Icarusar ehf., áður Saxbyggs ehf., tekið til gjaldþrotaskipta. Sama dag var skiptastjóri skipaður í búið en skiptum lauk síðastliðinn miðvikudag.
Samkvæmt Lögbirtingablaðinu námu forgangskröfur alls 220 milljónum króna og fengust þær greiddar að fullu. Almennar kröfur námu hins vegar 12,9 milljörðum króna. Upp í þær greiddust 1,864 milljarðar króna, eða 14,34 hundraðshlutar. Ekkert fékkst greitt upp í eftirstæðar kröfur.
Þar með er endanlega dregin lína undir eitt af umsvifameiri fasteigna- og fjárfestingafélögum áranna fyrir hrun, en fall þess skildi eftir sig milljarðakröfur og langvinnt skiptaferli.
Saxbygg var á sínum tíma áberandi í íslensku viðskiptalífi og tengdist stórum fasteigna- og fjárfestingaverkefnum bæði hér heima og erlendis.
Félagið var í eigu Saxhóls, sem tengdist Nóatúnsfjölskyldunni, og BYGG, Byggingarfélags Gylfa og Gunnars, og kom að fjárfestingum í Englandi og Þýskalandi auk verkefna annars staðar á Norðurlöndum.
Félagið var jafnframt stór aðili í fasteignarekstri hér á landi. Það átti um tíma stóran hlut í Fasteignafélagi Íslands, sem síðar varð hluti af Eik Properties, og tengdist þar með meðal annars eignum við Smáralind og öðrum stórum þróunarverkefnum.
Þá átti Saxbygg um tíma einnig rúmlega 5% hlut í Glitni, sem undirstrikar hversu samofið félagið var fjármálakerfinu og útrásarumsvifunum á síðustu árunum fyrir bankahrunið.
Heimild: Vb.is












