Þessa daga stendur yfir útboð á rafkerfi í kjallara til fjórðu hæðar meðferðarkjarna. Stærð meðferðarkjarnans er um 71 þúsund fermetrar sem skiptast á 8 hæðir, þar af 2 hæðir neðanjarðar (K1 og K2).
Í þessu almenna útboði er óskað eftir tilboðum í raflagnir í kjallara K2 til fjórðu hæðar meðferðarkjarna, alls um 55 þúsund fermetra en megin hluti legudeilda á 5.-6. hæð er undanskilinn í þessu útboði.
Þeir verkþættir sem falla undir þetta útboð snúa að frágangi rafkerfa og má þar nefna:
- Hefðbundnar lág og smáspennulagnir
- Ljósabúnað og lýsingarkerfi
- Ljósastýringarkerfi
- Helstu smáspennukerfi, t.a.m.
- Gagnaflutningskerfi
- Loftnetskerfi (Tetra/GSM)
- Rýmingarkerfi
- Brunaviðvörunarkerfi
- Aðgangs- og innbrotaviðvörunarkerfi
- Árásar- og neyðarboðkerfi
- Öryggismyndavélakerfi
- Gasslökkvikerfi
- Hússtjórnarkerfi lagna og loftræsingar
- Deilhönnun ýmissa smáspennukerfa, t.a.m. hústjórnarkerfis
Heimild: NLSH.is












