Orka náttúrunnar óskar eftir tilboðum í verkið: „Lagerhús við Sleggju – Burðarvikri og undirstöður“
Verkið felur í sér uppsteypu á undirstöðum fyrir stálgrindarhús á athafnasvæði Orku náttúrunnar (ON) á Hellisheiði. Um er að ræða um 2.000 m² hús sem ætlað er að hýsa lager, verkstæði og starfsmannaaðstöðu.
Allri jarðvinnu verður lokið og nær verksviðið því eingöngu til steypuvinnu, þar með talið mótasmíði, járnbindingu, ísetningu festibolta og annarra ísteyptra hluta, steypu undirstaðna og frágang í kjölfar steypu.
Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum og verklýsingu.
| Útboðsgögn afhent: | 31.03.2026 kl. 11:00 |
| Skilafrestur | 04.05.2026 kl. 14:00 |
| Opnun tilboða: | 04.05.2026 kl. 14:00 |












