Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í undirbúningsverk, jarðvinnu og lagnir Þeistareykjum.
Á Þeistareykjum hefur verið unnin raforka með tveimur 45 MWe eimsvalavélum frá árinu 2018. Nú stendur til að hefja niðurdælingu á jarðhitalofttegundum í borholur á niðurrennslissvæði virkjunarinnar auk þess sem ætlunin er að leggja lagnir af ýmsum toga í tengslum við fjölnýtingarsvæði sunnan skiljustöðvar þar sem til stendur, meðal annars, að reisa nýtt hús fyrir iðnaðarnotkun, nefnt fjölnýtingarhús.
Einnig stendur til að bæta við nýrri aflvél, sem ætlað er að nýta háþrýsta gufu frá borholum og bæta þar með nýtingu jarðhitans á svæðinu. Nýja aflvélin, sem kölluð er toppvél er ætlaður staður á svæði sunnan við skiljustöðvarsvæði virkjunarinnar.
Vegna þessara fyrirhuguðu framkvæmda ætlar verkkaupi að hefja jarðvinnu og undirbúningsframkvæmdir fyrir verkin 2026. Undirbúningsframkvæmdirnar felast í jarðvinnu og lögn pípna og strengja af ýmsum toga frá stöðvarhúslóð og að niðurrennslissvæði virkjunarinnar vestan við skiljustöðvarsvæði og að gera nýjan aðkomuveg, byggja upp plan og grafa fyrir og fylla undir fyrirhugað toppvélarhús.
| Auglýst: | 31.03.2026 kl. 00:00 |
| Skilafrestur | 28.04.2026 kl. 14:00 |












