Home Fréttir Í fréttum 21.04.2026 Malbiksvið­gerð­ir Suður­svæði 2026

21.04.2026 Malbiksvið­gerð­ir Suður­svæði 2026

55
0
Mynd: sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Vegagerðin býður hér með út viðgerðir á malbiki á Suðursvæði 2026. Verkið felst í viðgerðum á malbikuðum slitlögum á stofnæðakerfi Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og Suðurlandi að Hveragerði og Þorlákshöfn og norður fyrir Hvalfjarðargöng.

Helstu magntölur eru áætlaðar:
Sagaðar viðgerðir
80 m2
Fræstar viðgerðir
2.750 m2

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 30. mars 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. apríl 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.