F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Bryggjuhverfi vestur – Yfirborðsfrágangur, útboð nr. 16284.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið er í aðalatriðum fólgið í því að ganga frá yfirborði götu og gangstéttar með malbiki og hellulögn. Um er að ræða eftirfarandi framkvæmdir: Gatnagerð: Afrétta núv. styrktarlag, leggja burðarlag og neðra malbikslag. Steypa kantstein og helluleggja skv. teikningum. Stígagerð: Afrétta núv. styrktarlag, leggja burðarlag og malbikslag auk frágangs hliðarsvæða. Fráveita: Frágangur og tenging svelgja í regnbeðum. Götulýsing: Leggja skal strengi og setja upp götulýsingu skv. teikningum.
Helstu magntölur:
Burðarlag 750 m3
Malbik 3.500 m2
Hellulögn 800 m2
Regnbeð 6 stk.
Uppsetning götulýsingastólpa: 25 stk.
Strengir götulýsingar: 700 m
Áætluð lok framkvæmdatíma: 10. september 2026.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 11: þann 20. mars 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 10. apríl 2026.












