F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Korpuskóli – Endurgerð lóðar – 1.áfangi 2026, útboð nr. 16280.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið snýr að endurgerð/breytingum á lóð Korpuskóla að Bakkastöðum 2, 112 Reykjavík vegna breyttrar notkunar á húsnæði. Horft verður til hluta skólalóðar þar sem aðalleiksvæði skólans er staðsett en það svæði er alls u.þ.b 6700 m² að stærð en heildarstærð lóðarinnar er um 22.000 m². Korpuskóli verður að sérkennsluskóla fyrir eldri börn á grunnskólaaldri.
Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki. Bætt verður við snjóbrædd svæði á lóð. Öll aðstaða á skólalóðinni verði bætt og verði aðgengileg fyrir börn og fullorðna með mismunandi tegundir fötlunar, þar með talið hreyfihömlun, sjón- eða heyrnarskerðingu og þroskafrávik.
Framkvæmdatími – verklok : Framkvæmdum skal vera að fullu lokið eigi síðar en 14.ágúst 2026
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15: þann 20. mars 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 14. apríl 2026.












