Home Fréttir Í fréttum Hagnast um 3,2 milljarða á fimm árum

Hagnast um 3,2 milljarða á fimm árum

69
0
Verktakafyrirtækið Þjótandi er staðsett í Rangárþingi ytra.

Verktakafyrirtækið Þjótandi, sem staðsett er í Rangárþingi ytra og fæst við snjómokstur, jarðvinnu, vegagerð og aðra jarðvinnu sem tengist mannvirkjagerð, hagnaðist um 588 milljónir króna í fyrra. Árið áður nam hagnaður félagsins rúmum milljarði. Frá og með árinu 2021 hefur félagið samtals hagnast um 3,2 milljarða króna.

Samstæða Þjótandi velti 2.993 milljónum króna í fyrra, sem er samdráttur um 10% frá fyrra ári þegar tekjurnar námu 3.340 milljónum. Í ársreikningi segir að verkefnastaða félagsins fyrir árið 2026 sé góð en félagið áformi að taka þátt í útboðum til að styrkja verkefnastöðuna.

Félagið fjárfesti á árinu í Laxey ehf. fyrir 50 milljónir og keypti allt hlutafé í Gröfuþjónustunni Brinks ehf. í Vestamannaeyjum fyrir 200 milljónir.

Eignir félagsins voru bókfærðar á 5.522 milljónir um síðustu áramót og nam eigið fé 4.749 milljónum. Stjórn leggur til að 50 milljónir verði greiddar í arð. Þjótandi er í jafnri eigu Ólafs Einarssonar og Steinunnar Birnu Svavarsdóttur.

Heimild: Vb.is