Home Fréttir Í fréttum Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst

Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst

3
0
Mæta á brotum með viðurlögum og þeim skal beitt skilvirkt en á sama tíma í takt við umfang og alvarleika brota. mbl.is/Eggert

„Á Íslandi er samkeppnishæft og heilbrigt atvinnulíf sem leggur grunn að velferð og hagsæld fólksins í landinu. Vinnumarkaðurinn býr við skýra og góða umgjörð þar sem borin er virðing fyrir réttindum vinnandi fólks og farið að þeim reglum sem gilda um rekstur fyrirtækja. Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins vinna í sameiningu gegn brotastarfsemi og tekið er á henni þegar upp kemst.“

Þannig hljómar framtíðarsýn ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins um með hvaða hætti takast eigi við brotastarfsemi á vinnumarkaði. Stjórnvöld hafa markað sér stefnu og aðgerðaáætlun gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði.

Samstarf, eftirlit, forvarnir og viðurlög

Þar eru sett fram tvö meginmarkmið:

  • Samstarf ólíkra aðila leggur grunn að skilvirku eftirliti og samhæfðu viðbragði við brotum á vinnumarkaði. Samstarf og eftirlit byggir á upplýsingaöflun, gögnum og greiningu, er áhættumiðað og hlutverk og ábyrgð þeirra sem að samstarfinu koma er vel skilgreint.

Hvað felst í markmiðinu? Í fyrsta lagi að samstarf ýmissa stofnana sem fara með ólík starfssvið, s.s. löggæslu, skattayfirvalda og vinnueftirlits, sé nauðsynlegt til að vinna gegn brotastarfsemi. Samstarfið sé formlegt og hægt sé að kalla til þá opinberu aðila sem þurfa þykir hverju sinni. Samstarfið nái þó ekki einvörðungu til opinberra aðila heldur einnig til aðila vinnumarkaðarins.

Þá sé tryggt að eftirlitsstofnanir komi á markvissri upplýsingaöflun og greiningu gagna um ætluð brot á vinnumarkaði og miðli þeirri þekkingu á milli sín svo unnt sé að bregðast við brotum á vinnumarkaði.

Byggt á þeim greiningum sem unnar eru í samstarfinu sé hægt að beita áhættumiðaðri nálgun í eftirliti á hverjum tíma. Eftirlit verði þannig markvissara auk þess sem forvarnargildi þess eykst.

  • Forvarnir gegn brotum á vinnumarkaði byggjast á skilvirku eftirliti, fræðslu og samstarfi. Viðurlögum við brotum á vinnumarkaði er beitt í takt við umfang, alvarleika og endurtekningu og hafa fælingarmátt.

Hvað felst í markmiðinu? Að mikilvægt sé að fyrirbyggja brot á vinnumarkaði og það sé gert með greiningu á gögnum og forvörnum sem byggja á þekkingu og yfirsýn yfir það sem gerist á vinnumarkaði. Með fræðslu og samstarfi sé grunnur lagður að því að réttindi og skyldur séu virt hjá þeim sem nýir koma inn á vinnumarkaði, hvort sem um sé að ræða launafólk eða fyrirtæki.

Brotum sé mætt með viðurlögum og þeim beitt skilvirkt en á sama tíma í takt við umfang og alvarleika brota. Tekið sé á endurteknum brotum og er viðurlögum ætlað að vera með þeim hætti að þau hafi fælingarmátt. Með viðurlögum er tryggt að brotastarfsemi veiti þeim sem slíkt stunda ekki forskot í samkeppni við önnur fyrirtæki.

Til að vinna að velferð fólks á vinnumarkaði séu forvarnir mikilvægar og að allt kapp sé lagt á að koma í veg fyrir hugsanleg brot.