Home Fréttir Í fréttum Virkjun á stærð við Kárahnjúkavirkjun

Virkjun á stærð við Kárahnjúkavirkjun

15
0
Eftirspurn eftir orku á Grænlandi er takmörkuð. mbl.is/RAX

Landsvirkjun skoðar nú stórt vatnsaflsverkefni á Grænlandi sem er sambærilegt að stærð og Kárahnjúkavirkjun, stærsta virkjun á Íslandi.

„Þar þarf að hugsa verkefnið með nýjum orkukaupanda,“ segir Kristján Guðmundsson, forstöðumaður erlendra verkefna, í samtali í ársskýrslu Landsvirkjunar sem birt er á vef fyrirtækisins og bætir við að eftirspurn eftir orku á Grænlandi sé takmörkuð.

Þá segir hann að á Nýfundnalandi í Kanada sé vindorkuverkefni komið lengra. „Það er sambærilegt Vaðöldu að stærð,“ segir hann á vefsíðunni. Auk þess er að hans sögn verið er að skoða smærri vatnsaflsverkefni á sama svæði.

Þekkja aðstæður

Í samtalinu segir að erlend verkefni Landsvirkjunar beinist fyrst og fremst að vatnsafli og jarðvarma á norðurslóðum. „Við leggjum áherslu á svæði þar sem við þekkjum aðstæður vel,“ segir Kristján.

Kristján Guðmundsson forstöðumaður erlendra verkefna Landsvirkjunar.

Þar nefnir hann sérstaklega Grænland og Kanada, þar sem Landsvirkjun hafi byggt upp tengsl og samstarf yfir langan tíma. „Það tekur langan tíma að byggja upp sambönd á nýjum mörkuðum, en þau skipta sköpum,“ segir hann.

Þríþættur tilgangur

Um tilgang erlendu starfseminnar segir Kristján á vefnum hann vera þríþættan. Fyrsti þátturinn tengist loftslagsmálum þar sem framtíðarsýn Landsvirkjunar sé sjálfbær heimur, knúinn endurnýjanlegri orku. Með þátttöku í verkefnum erlendis vilji fyrirtækið leggja sitt af mörkum til orkuskipta, líkt og heima á Íslandi.

Annar þátturinn er verðmætasköpun að sögn Kristjáns. Það snýst um að styrkja arðgreiðslugetu Landsvirkjunar til framtíðar.

Þriðji þátturinn er áhættudreifing. „Það er ákveðin áhætta í því að allir virkjunarkostir séu háðir sömu ytri aðstæðum,“ segir hann í samtalinu og bendir á að verkefni í ólíkum löndum lúti mismunandi lögmálum. Þá hafi starfsemin einnig jákvæð áhrif á fyrirtækið sjálft. „Hún gerir Landsvirkjun að alþjóðlegri og spennandi vinnustað,“ segir Kristján einnig á vef Landsvirkjunar.

Heimild: Mbl.is