
Áætlanir gera ráð fyrir því að eftir þrjú ár geti starfsemi Galtarhafnar verið komin á fulla ferð og að þar fari í gegn stöðugur straumur af gáma- og skemmtiferðaskipum.
Gunnar Þór Gunnarsson athafnamaður segir að Galtarhöfn verði stórt athafnasvæði þar sem fjöldi fyrirtækja mun hafa aðstöðu og gætu allt að 1.000 manns verið þar við störf að staðaldri, en viðlegukanturinn verður kílómetri að lengd.
Galtarhöfn verður rétt vestan við Grundartangasvæðið en Gunnar, upphafsmaður verkefnisins, hefur verið þar með annan fótinn frá 1996, fyrst sem starfsmaður hjá Norðuráli og síðar sem stjórnandi eigin fyrirtækja sem sinnt hafa ýmiss konar þjónustu við fyrirtækin á svæðinu.
Heimild: Mbl.is











