
Hafnarfjarðarhöfn hefur síðustu ár unnið að endurbótum á svokölluðum Norðurgarði, sem er elsti hafnargarður hafnarinnar og var byggður í upphafi fimmta áratugar síðustu aldar.
Framkvæmdum við frágang á Norðurbakkasvæðinu er að mestu lokið og í fyrrasumar var Norðurgarður steyptur upp. Nú er lokafrágangur hafinn á garðinum og næsta umhverfi.

Heimild: Mbl.is











