Home Fréttir Í fréttum Alva fast­eignir að ganga frá kaupum á Val­höll

Alva fast­eignir að ganga frá kaupum á Val­höll

39
0
Alva fast­eignir er í 100% eigu Skorra Rafns Rafns­sonar í gegnum félagið Alva Capi­tal. Ljósmynd: Samsett

Nýr eigandi Valhallar hyggst breyta húsnæðinu í hótel.

Val­höll við Háa­leitis­braut 1, höfuðstöðvar Sjálf­stæðis­flokksins og eitt þekktasta pólitíska kenni­leiti borgarinnar, er langt kominn í söluferli en búast við að gengið verði frá kaupunum á allra næstu dögum.

Kaupandi er Alva fast­eignir ehf., sem hefur þegar lagt fram fyrir­spurn til skipu­lags­full­trúa Reykja­víkur­borgar um að breyta notkun hússins úr skrif­stofu­húsnæði í hótel.

Húsið var sett á sölu í nóvember og sagði Guðrún Haf­steins­dóttir for­maður flokksins á þeim tíma að ástæðan fyrir sölunni væri ein­fald­lega sú að starf­semi stjórn­mála­flokka sé allt önnur nú en þegar húsið var reist fyrir lið­lega hálfri öld, en aðeins brot af því er í dag­legri notkun.

Alva fast­eignir er í 100% eigu Skorra Rafns Rafns­sonar í gegnum félagið Alva Capi­tal.

Í erindi Alva fast­eigna hjá borginni er lagt upp með að 2.–4. hæð hússins verði nýtt undir gistingu, jafn­framt að jarðhæð verði að hluta til með hótel­her­bergjum, og að mat­salur og önnur þjónusta sem tengist hefðbundnum hótel­rekstri verði í kjallara.

Þá var einnig óskað eftir af­stöðu til þess að bæta við inn­dreginni þak­hæð ofan á núverandi byggingu.

Skipu­lags­full­trúi bendir á að þar sem húsið er skráð sem skrif­stofu­bygging í fast­eigna­skrá og skil­greint sem þjónustu­bygging í gildandi deili­skipu­lagi þurfi deili­skipu­lags­breytingu til að heimila hótel­starf­semi.

Sam­kvæmt Aðal­skipu­lagi Reykja­víkur 2040 fellur hótel­rekstur þó al­mennt að þeirri starf­semi sem heimil er á viðkomandi miðsvæði (M2b), þar sem meðal annars er gert ráð fyrir skrif­stofum, þjónustu og hótelum.

Hins vegar er tekið neikvætt í að hækka húsið um eina hæð.

Í um­sögninni er jafn­framt lögð rík áhersla á varðveislu­gildi Val­hallar: byggingin, sem reist var árið 1975 og hönnuð af Halldóri H. Jóns­syni og Garðari Halldórs­syni, er sögð einstök að því leyti að hún var sér­hönnuð til að hýsa höfuðstöðvar stjórn­mála­flokks og telst tákn­ræn bygging á áberandi horn­lóð.

Vísað er til þess að hún sé í rauðum flokki í byggðakönnun, sem jafnan er notaður um hús sem lagt er til að njóti verndar vegna byggingar­listar­legrar, menningar­sögu­legrar og um­hverfis­legrar sér­stöðu.

Tekið er fram að af­greiðsla skipu­lags­full­trúa á fyrir­spurninni jafn­gildir ekki form­legri leyfis­veitingu eða endan­legri niður­stöðu um fram­kvæmdir.

Næstu skref, verði verk­efnið þróað áfram, myndu því fela í sér nánari út­færslu og form­legt ferli deili­skipu­lags­breytingar – með til­heyrandi mati á áhrifum á ásýnd og verndar­gildi hússins.

Heimild: Vb.is