Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028.
Verkefnið gengur vel að sögn Höskuldar Tryggvasonar, verkefnastjóra hjá Vegagerðinni, og ekkert óvænt komið upp á fram að þessu. Verktakinn ÞG Verk vinni nú að uppsteypu á undirstöðum fyrir stöpla nýju brúarinnar, bæði á árbökkunum og út í eynni sem liggur í miðri Ölfusá.
Höskuldur segir um að ræða mjög umfangsmikla framkvæmd og með stærri verkefnum í vegagerð sem ráðist hefur verið í hér á landi.

Sýn
Brúin verði 330 metra löng og um fjörutíu starfsmenn vinni nú jafnan á svæðinu. „En þeim fer fjölgandi eftir því sem líður meira fram á vorið,“ sagði Höskuldur í kvöldfréttum Sýnar en hann var þá staddur á nýrri bráðabirgðabrú sem búið er að reisa út í eyjuna. Verður hún notuð meðan á framkvæmdum stendur.

Sýn
Nýja brúin komi til með að breyta miklu fyrir íbúa
Íbúar á Selfossi hafa lengi kvartað undan umferðaröngþveiti á gömlu Ölfusárbrúnni á álagstímum. Höskuldur segir nýju brúnna koma til með að breyta mjög miklu enda muni hún leiða umferðina annað.
„Öll þungaumferð mun færast upp á nýju brúnna og svo líka mikið af annarri umferð líka, sérstaklega þeir sem fara hér beint í gegn.“
Hluti af framkvæmdunum sé að gera vegbrú í nýjum mislægum vegamótum austan við Selfoss. Eru þær framkvæmdir í fullum gangi sem og vegagerð sitt hvorum megin við brúnna. Því sé ljóst að mikið verði um að vera á svæðinu næstu misseri og ár.
Heimild: Visir.is












