Home Fréttir Í fréttum 04.03.2026 Holtahverfi norður áfangi 2 – gatnagerð og lagnir

04.03.2026 Holtahverfi norður áfangi 2 – gatnagerð og lagnir

96
0
Holtahverfi norður áfangi 2 – gatnagerð og lagnir

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar (UMSA), fyrir hönd Akureyrarbæjar, Norðurorku og Mílu óskar eftir tilboðum í jarðvegsskipti, jöfnun og malbikun, neysluvatnslagnir, lagningu fráveitulagna, rafstrengja, fjarskiptalagna og ídráttarröra í götur og stíga í Holtahverfi á Akureyri. Einnig í uppsetningu ljósastaura og tengikassa.

Helstu magntölur:

Uppúrtekt samtals um 12.000 m3

Fyllingar/burðarlög samtals um 14.000 m3

Malbikun götur, stígar og stéttar samtals um 22.000 m2

Stofnlagnir fráveitu um 600 m

Jarðstrengir rafveitu/gatnalýsingu um 1.500 m

Skurðir veitna um 2.000 m

Verkið er áfangaskipt og skal að fullu lokið fyrir 15. september 2027.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá 12. febrúar 2026.

Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!

Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.

Tilboðum skal skila á útboðsvef Akureyrarbæjar, eigi síðar en miðvikudaginn 4. mars kl. 11:15 og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum, eða fulltrúum þeirra, sem þess óska.