
Skipulagsstofnun hefur loks staðfest breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar sem felur í sér að byggja má hótel á landi Litla-Botnslands 1. Styr hefur staðið um fyrirhuguð áform og Skipulagsstofnun sló í tvígang á putta Hvalfjarðarsveitar vegna vinnubragða í tengslum við þessi áform.
Ár er nú liðið síðan erlendir aðilar kynntu áform um uppbyggingu á hóteli og ferðaþjónustu fyrir botni Hvalfjarðar, nánar tiltekið að Litla-Botnslandi 1 sem er um 12 hektara óbyggð jörð skammt inn af gamla Botnsskála.
Hyggjast framkvæmdaaðilar leggja áherslu á náttúruferðamennsku samhliða mikilli skógrækt. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 200 gesti á hóteli og í minni gestahúsum ásamt veitingarekstri, náttúruböðum, útivist og annarri ferðatengdri þjónustu.
Heildarbyggingarmagn svæðisins verður allt að fimm þúsund fermetrar en auk hótels verða þarna reist lítil gestahús, viðburðahús, starfsmannahús og gróðurhús. Þar er einnig áformað að verði veitingarekstur og náttúruböð.
Heimild: Mbl.is











