Home Fréttir Í fréttum Um 900 íbúðir eru nú á byggingarstigi

Um 900 íbúðir eru nú á byggingarstigi

16
0
Hér eru sérbýlishús áberandi en lóðir undir slíkar byggingar eru eftirsóttar. Úthlutun lóða er langt komin. mbl.is/Sigurður Bogi

Mikið er umleikis um þessar mundir við byggingu íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði. Þar eru nú rúmlega 900 íbúðir á byggingarstigi; þar af 350 í Hamranesi sem allar eru í fjölbýlishúsum.

Byrjað var að steypa fyrir fyrstu byggingu á Hrauni vestur í síðustu viku en á þeim reit munu rísa 106 glæsilegar íbúðir. Í 4. hluta Áslandshverfis eru í byggingu 42 íbúðir í rað- og parhúsum og 50 einbýlishús.

Á sama svæði verður opnað fyrir úthlutun á 150 einbýlis-, par- og raðhúsalóðum á þessu ári. Gatnagerð í þessum hluta Áslands stendur nú yfir og verður svæðið tilbúið til byggingarframkvæmda í ágúst.

Einnig eru framkvæmdir farnar af stað við Hvaleyrarbraut og þar stendur til að frekari framkvæmdir hefjist á næstu mánuðum. Því til viðbótar er verið að vinna í uppbyggingarmálum tengdum Óseyrarhverfi og Flensborgarhöfn.

Heimild: Mbl.is