Home Fréttir Í fréttum Lekavandamál í nýlegu húsi Hafró

Lekavandamál í nýlegu húsi Hafró

26
0
Húsnæði Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði. Mynd:Hafrannsóknastofnun/Facebook

Upp hafa komið einstaka tilvik leka í nýlegu húsnæði Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði. Um hefur verið að ræða rigningarvatn sem borist hefur inn í húsið, sérstaklega við ákveðin veðurskilyrði. Mygla hefur þó ekki greinst í húsnæðinu og starfsfólk ekki orðið fyrir neinum óþægindum. Eigandi hússins hefur unnið að endurbótum.

Í húsinu eru aðalstöðvar Hafrannsóknastofnunar en það stendur við Fornubúðir í Hafnarfirði, rétt við höfnina í bænum. Um er að ræða stærsta timburhús landsins en það var tekið í notkun árið 2020. Húsið er 4.100 fermetrar og fimm hæðir. Húsið var byggt af fasteignafélaginu Fornubúðir ehf. sem leigir stofnuninni húsið.

DV barst fyrir helgi ábending um að nokkuð hefði verið um leka meðfram klæðningu hússins og sá leki hafi valdið rakaskemmdum og myglu.

Í skriflegu svari við fyrirspurn DV staðfestir Eggert Benedikt Guðmundsson settur forstjóri Hafrannsóknastofnunar að það hafi komið upp lekavandamál í húsinu:

„Já það hafa komið upp einstök tilvik lekavandamála í húsnæðinu.“

DV spurði jafnframt hversu umfangsmikill lekavandamáliin hefðu verið og einnig um umfang tilheyrandi rakaskemmda og myglu:

Lekavandamál hafa komið upp einstaka sinnum við sérstakar veðuraðstæður, einkum þegar óvenju djúpar lægðir með sterkri suðaustan átt hafa gengið yfir. Ekki hefur greinst mygla í húsnæðinu.

Enginn kostnaður

Aðspurður segir Eggert engan kostnað hafa fallið á stofnunina vegna lekavandamála:

Nei. Enginn beinn kostnaður hefur fallið á Hafrannsóknastofnun, þar sem viðhald og úrbætur vegna slíkra atriða eru á ábyrgð leigusala.

Þegar lekarvandamál og tilheyrandi mygla hafa komið upp í öðrum opinberum stofnunum hefur það meðal annars haft í för með sér að færa hefur þurft starfsfólk á milli vinnurýma og sumt af því jafnvel veikst til skemmri eða lengri tíma. Þar sem engin mygla hefur greinst í húsnæði Hafrannsóknastofnunar vegna lekans þar hafa greinilega engar slíkar afleiðingar orðið en í svari við spurningum DV um þetta segir Eggert:

Ekki hefur þurft að færa starfsfólk milli vinnurýma eða gera breytingar á starfsemi vegna þessa. Starfsfólk hefur ekki tilkynnt veikindi sem rekja má til lekavandamála, né eru til staðar upplýsingar um langvinn veikindi af slíkum sökum.

Loks spurði DV hvort eigandi hússins hafi brugðist á einhvern hátt við lekavandamálinu og þá hvernig og hvort það væri ekki bagalegt fyrir stofnunina að verða fyrir slíku í svo nýlegu húsi. Í svari Eggerts segir:

Húseigandi hefur brugðist við lekavandamálum þegar þau hafa komið upp, meðal annars með því að fara í úrbætur á ytri klæðningu og þéttingu við glugga. Þrátt fyrir að lekavandamál séu alltaf óæskileg hefur leigusali tekið á málum eftir atvikum, og stofnunin fylgist áfram með stöðunni í samstarfi við eiganda hússins.

Heimild: Dv.is