
Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að heimila rekstur matvöruverslunar/stórmarkaðar á svokölluðum Bauhaus-reit við Lambhagaveg og Vesturlandsveg fæst ekki rædd á vettvangi borgarstjórnar Reykjavíkur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Tillagan var lögð fram á fundi borgarstjórnar 13. janúar sl. en afgreiðslu hennar frestað. Að frestuninni stóðu fulltrúar meirihlutaflokkanna. Sumir borgarfulltrúar sem nú voru andvígir því að taka tillöguna á dagskrá voru hlynntir henni þegar hún var á dagskrá 2024 en þá voru þeir í minnihluta.
Sjálfstæðismenn lögðu tillöguna fram að nýju á fundi borgarstjórnar 20. janúar. Samþykkt var að vísa tillögunni til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar.
Heimild : Mbl.is











