Home Fréttir Í fréttum Uppsetning útveggjaeininga hafin í rannsóknahúsi Nýs Landspítala

Uppsetning útveggjaeininga hafin í rannsóknahúsi Nýs Landspítala

27
0
Mynd: NLSH.is

Í upphafi árs er uppsteypu á rannsóknahúsi lokið og frágangsvinna og næstu verkþættir í fullum gangi. Uppsetning útveggjaeininga er hafin og á næstu vikum hefst vinna við yfirborðsfrágang á þökum hússins.

„Nú þegar uppsteypu er lokið hefjast næstu verkþættir, þar á meðal uppsetning útveggjaeininga og þakfrágangur ásamt regnvatnslögnum. Áætlað er að húsið verði orðið vatnshelt í lok sumars,“ segir Árni Kristjánsson, staðarverkfræðingur hjá NLSH.

Þegar uppsteypu er lokið hefjast nýir verkþættir, sem gera það að verkum að húsið færist nær því að verða fullbúið og tæknilegt rannsóknahús.

Á næstu mánuðum verður lögð áhersla á að ljúka ytri kápu, ganga frá þökum og regnvatnslögnum og tryggja að byggingin verði vatnsheld samkvæmt áætlun.

Samhliða því fer undirbúningur á innri frágangi og tæknikerfa af stað, þannig að verkframvinda haldist stöðug og framkvæmdin haldi áfram samkvæmt áætlun.

Heimild: NLSH.is