Home Fréttir Í fréttum Heildartjón í Grindavík gæti orðið 12 milljarðar

Heildartjón í Grindavík gæti orðið 12 milljarðar

14
0
Stór sprunga á iðnaðarsvæði í Grindavík. Myndin er tekin í mars 2024. – Karl Sigtryggsson

Tjónamati í Grindavík er að mestu lokið. Altjónshús eru rúmlega 70 og náttúruhamfaratryggingum hafa borist á 800 tilkynningar um tjón í bænum. Heildarbótafjárhæðin hleypur líklega á 12 milljörðum.

Náttúrhamfaratryggingar Íslands hefur undanfarið unnið að nánari skoðun á 47 lóðum í Grindavík sem liggja á – eða hjá – sprungum. Talin var þörf á jarðkönnun þar sem grafið var með gröfu að sprungunum til að meta áhrifin á húsin sem þar standa.

„Það eru eitthvað á milli 10 og 12 húseignir sem viðgerðir væru það flóknar eða dýrar að það svaraði ekki kostnaði að fara í þær. Það er sirka sá fjöldi af altjónshúsum sem kom í ljós við þessar rannsóknir“ segir Jón Örvar Bjarnason, sviðsstjóri vátryggingasviðs Náttúruhamfaratrygginga.

Sprungubelti sem kortlögð hafa verið í bænum.
RÚV – ÍSOR, EFLA, VERKÍS, HÍ

Með þessum húsum eru því altjónshúsin orðin rúmlega 70.

„Heildargreiðsla bóta er núna komin í rúmlega 10 milljarða. Langflest þessara altjónsmála og reyndar langflest tjónamálin eru uppgerð,“ segir Jón Örvar.

„En það eru nokkur mál sem eru enn þá í úrvinnslu hjá okkur þannig við gerum ráð fyrir að heildarbótagreiðsla á atburðinum eins og hann hefur orðið, sé kannski um eða yfir 12 milljarðar,“ segir hann.

Jón Örvar segir að búið sé að meta öll tjón sem tilkynnt hefur verið um. Náttúruhamfaratryggingu hafa borist 7-800 tjónatilkynningar í Grindavík og skoðað 4-500 húseignir þar.

„Ég held að það sé óhætt að segja að miðað við allt séum við komin langleiðina með þetta. Það verða örfá mál sem verða í úrvinnslu eitthvað áfram en sem betur fer þá sjáum við fyrir endann á þessu, amk því sem gerst hefur í Grindavík hingað til,“ segir hann.

Heimild: Ruv.is