Home Fréttir Í fréttum Nýja landfyllingin féll á tíma

Nýja landfyllingin féll á tíma

47
0
Sundahöfn. Hér er horft yfir hafnarsvæðið í áttina að Viðey. Landfyllingin var fullkláruð 2020 og hin nýja landfylling á að koma í framhaldi, nær Viðey. Ljósmynd/Alta

Deiliskipulag vegna stækkunar landfyllingar við Klettagarða í Sundahöfn nær ekki fram að ganga. Því þarf að byrja ferlið upp á nýtt.

Fram kemur í fundargerð skipulagsfulltrúa Reykjavíkur að auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins hafi ekki verið birt í B-deild Stjórnartíðinda innan árs frá því að athugasemdafresti tillögu til deiliskipulags lauk. Málinu sé því lokað.

Heimild: Mbl.is