Viðskipti með húsnæði voru daufari undir lok síðasta árs en þau eiga að sér að vera. Hæstaréttardómur um húsnæðisvexti í nóvember kældi markaðinn meðan óvissa ríkti í lánamálum og íbúðaverð lækkaði í desember.
Óvissa um lánakjör eftir vaxtadóm Hæstaréttar í nóvember varð til þess að fasteignamarkaðurinn kólnaði og var svo áfram í desember. Kaupsamningum fækkaði milli ára í nóvember og íbúðaverð lækkaði um rúmt eitt prósent milli mánaða í desember.
Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þar kemur fram að framboð er enn sögulega mikið og fasteignir eru lengur á markaði alls staðar á landinu en áður.
Vísað er til mats fasteignasala sem segja virkni markaðarins vera litla miðað við árstíma. Markaðurinn er hagstæðari kaupendum en seljendum.
Leiguverð hækkaði um tólf prósent milli ára í nóvember en umfimm prósent í desember.
Heimild: Mbl.is












