Home Fréttir Í fréttum 05.02.2026 Leiksskólinn Maríuborg. Kennslustofur, hönnun, smíði og lóðafrágangur

05.02.2026 Leiksskólinn Maríuborg. Kennslustofur, hönnun, smíði og lóðafrágangur

15
0
Mynd: Reykjavík.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Leiksskólinn Maríuborg. Kennslustofur, hönnun, smíði og lóðafrágangur, útboð nr. 16245.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Verkið felur í sérhönnun, smíði, flutning og uppsetningu tveggja kennslustofa ásamt tengibyggingu. Verkefnið nær einnig til hönnunar og framkvæmdar jarðvinnu, gerð undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Að auki felur verkið í sér lóðarvinnu, lagningu og tengingu stofnlagna við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.

Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x 6,4m eða um 96 m2á einni hæð ásamt tengibyggingu, um 40m2, samtals er því nýja húsnæðið um 232 mað stærð. Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu.

Verkið felur í sér eftirfarandi verkþætti:

Hönnun og smíði tveggja kennslustofa og tengibyggingar viðleikskólann, þar með talið jarðvinnu og gerð undirstaða fyrir kennslustofurnar (alverktaka).

Lóðarfrágang á tengdum svæðum samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.

Lagningu stofnlagna fyrir kennslustofur ásamt tengingu við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.

Áætluð lok framkvæmdatíma: 4. desember 2026.

Vettvangsskoðun:  Leikskólinn Maríuborg, 13. janúar 2026, kl 15:30

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 16:30: þann 16. desember 2025.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 5. febrúar 2026.