Home Fréttir Í fréttum Komin leyfi fyrir fram­kvæmd­um við baðlón

Komin leyfi fyrir fram­kvæmd­um við baðlón

54
0
RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon

Dótturfélag Bláa lónsins hefur öll tilskilin leyfi vegna framkvæmda við uppbyggingu baðlóns, hótels og gestastofu í Þjórsárdal. Framkvæmdirnar eru umdeildar enda á friðlýstu landslagsverndarsvæði.

Gerður Stefánsdóttir, líffræðingur og varasveitarstjórnarfulltrúi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, sagði í kvöldfréttum útvarps á laugardag að hún teldi framkvæmdirnar brjóta gegn lögum um auðlindanýtingu.

Samkvæmt gögnum sem fréttastofa hefur fengið afhent er dótturfélagið með öll tilskilin leyfi til framkvæmdanna frá þar til bærum stofnunum, svo sem sveitarfélaginu, forsætisráðuneytinu, Minjastofnun, Umhverfisstofnun og Náttúruverndarstofnun.

Heimild: Ruv.is