Home Fréttir Í fréttum Ný öryggisráðstafanamiðstöð verði á Hólmsheiði

Ný öryggisráðstafanamiðstöð verði á Hólmsheiði

13
0
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að tryggja ríkinu lóð undir nýja fyrirhugaða stofnun, Miðstöð um öryggisráðstafanir, á landi Reykjavíkurborgar á Hólmsheiðarsvæðinu.

Hlutverk stofnunarinnar verður að reka úrræði fyrir einstaklinga sem dæmdir hafa verið til þess að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn í samræmi við ákvæði almennra hegningarlaga. Þar á meðal eru einstaklingar sem lokið hafa afplánun en talið er að séu enn hættulegir samfélaginu, að því er segir í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu.

Þá segir að viljayfirlýsingin sé mikilvægt skref í að tryggja þjónustu við þennan hóp og ekki síður auka öryggi almennings.

Tekið er fram að við byggingu Miðstöðvar um öryggisráðstafanir verði lögð áhersla á öruggar og tryggar aðstæður sem stuðli að endurhæfingu þeirra einstaklinga sem þar vistast. Markmiðið sé að tryggja þeim viðeigandi stuðning, þjálfun og meðferð.

Stjórnvöld loksins að taka utan um málið

Félagsmálaráðherra segir í tilkynningunni að óvissa hafi ríkt í þjónustu við einstaklinga sem dæmdir séu til að sæta öryggisráðstöfunum en nú séu stjórnvöld loksins að taka utan um þetta gríðarlega stóra mál.

Markmiðið sé að tryggja skjólstæðingum nýju stofnunarinnar öruggt og uppbyggilegt umhverfi og tryggja um leið öryggi almennings.

„Með þessari viljayfirlýsingu stigum við mikilvægt skref til að tryggja að öryggisvistunarúrræði verði að veruleika. Eitthvað sem sveitarfélög hafa kallað eftir árum saman. Nú munum við vinna náið saman að lausn sem bæði styrkir öryggi samfélagsins og skapar betri aðstæður til endurhæfingar,“ er haft eftir Heiðu Björg borgarstjóra.

Heimild: Mbl.is