
Verktakafyrirtækið Ístak og bæjaryfirvöld í Nuuk tilkynntu í gær að þau hefðu höggvið á hnút sem hindrað hefur opnun stærsta skóla Grænlands. Byggingarverkefnið er með þeim stærstu sem Íslendingar hafa annast erlendis en hefur verið stopp vegna ágreinings um brunavarnir.
Sjá mátti skólann í kvöldfréttum Sýnar en hann er í miðbæ Nuuk. Hann er samtals um átján þúsund fermetrar að stærð, í sjö samtengdum byggingum, og er honum ætlað að verða krúnudjásnið í grænlenska skólakerfinu.

Ívar Fannar Arnarsson
„Það er náttúrlega rosalega erfitt að horfa á svona byggingu standa auða, sérstaklega þegar þörf er á henni. Þessvegna hefur þetta bara verið mjög erfitt – og erfitt bara fyrir samfélagið allt á Grænlandi að horfa upp á tóma byggingu þarna fyrir tólfhundruð börn,“ segir Karl Andreassen, forstjóri Ístaks.
Það var í desember 2019 sem Ístak undirritaði samninga um smíði skólans en þetta var með stærstu verkefnum sem íslenskt verktakafyrirtæki hafði tekið að sér erlendis. Ístak samdi um verkið í alútboði fyrir 615 milljónir danskra króna, tæplega tólf milljarða íslenskra króna, og sá Verkís um verkfræðihönnun.

Sermersooq
Skólinn átti að verða tilbúinn árið 2023 en skömmu eftir undirritun skall á covid-heimsfaraldur, sem leiddi til þess að samningurinn framlengdist um eitt ár.
Skólinn var fullbúinn í fyrra en seint í ferlinu kom upp ágreiningur milli Ístaks og bæjaryfirvalda í Nuuk um hvernig brunavörnum skólans yrði háttað. Í gær tilkynntu málsaðilar að samkomulag hefði náðst.

Ístak
„Við fögnum þessu bara gríðarlega,“ segir forstjóri Ístaks. „Og það verði þarna fullt af hressum og skemmtilegum krökkum á næsta ári.“
Í fréttatilkynningu Nuukbæjar í gær segir að þetta hafi verið flókið og krefjandi ferli fyrir alla aðila. Niðurstaðan sé að setja upp vatnsúðunarkerfi.

Karl segir Ístak hafa unnið ötullega með verkkaupa að lausn málsins ásamt Verkís, hönnuði skólans.
„Nú á að setja sem sagt sprinkler í allan skólann, sem við gerum fyrir verkkaupa, og skólinn mun þá opna fyrst næsta skólaár.“
Skólinn verður sá stærsti á Grænlandi og er ætlaður fyrir 1.200 grunnskólanemendur og 120 leikskólabörn. Hann mun einnig nýtast bæjarbúum sem félags- og frístundamiðstöð utan skólatíma.

Egill Aðalsteinsson
„Þetta tefur allt í allt skólann um tvö skólaár. En að lokum verður skólinn tekinn í notkun.
Þetta er einn sá fullkomnasti og flottasti skóli allavega á Grænlandi. Og ég myndi nú segja líka: Þótt víðar væri leitað,” segir Karl Andreassen.
Heimild: Visir.is