Ein íbúð í götunni hækkaði um 57 milljónir í verði á þremur árum.
Frederik VI’s Allé í Frederiksberg í Danmörku er orðin táknmynd íbúðamarkaðarins í Kaupmannahöfn, að því er fram kemur í umfjöllun Børsen.
Gatan liggur við Frederiksberg Have, í tíu mínútna göngufæri frá neðanjarðarlest og stuttri hjólaferð frá Ráðhústorginu en staðsetningin veldur því að kaupendur eru reiðubúnir að greiða háar fjárhæðir fyrir fasteignir á svæðinu.
Nú er 98 fermetra íbúð á fjórðu hæð á götunni auglýst á 8.995.000 dönskum krónum, sem jafngildir nær 92 þúsund krónum á fermetra. Samvarar það um 170 milljónum íslenskra króna á gengi dagsins.
Seljandi gæti þannig grætt um 3 milljónir danskra króna á þremur árum, en íbúðin var síðast seld í október 2022 á 6 milljónir króna. Samsvarar það um 57 milljóna króna hagnaði á þremur árum.
Þegar Børsen beindi sjónum að götunni árið 2016 var hún kölluð „öfgadæmi“ um verðþróun, eftir að íbúð seldist á meira en 50 þúsund krónum á fermetra.
Þá urðu margir eigendur í raun milljónamæringar á pappír. Níu árum síðar hefur verðþróunin haldið áfram upp á við og aukist til muna síðustu ár.
Seðlabankastjóri Danmerkur, Ulrik Nødgaard, hefur varað við þessum hraða vexti íbúðaverðs og segir að jafnvel þótt tekjur vaxi hraðar í höfuðborginni „geti þetta ekki haldið áfram á sama hraða“ en bankinn fylgist grannt með þróuninni, að sögn Børsen.
Fasteignasalinn Gitte Grønlund, sem hefur starfað á Frederiksberg frá árinu 2000, segir spurninguna sem hún heyri hvað oftast vera óbreytta:
„Nú hljóta verðin að vera komin upp í topp,“ segir Gitte en hún bætir við að staðan sé þannig að fólki finnist verð á íbúðum á svæðinu hafa verið of hátt í langan tíma.
Tölurnar undirstrika muninn milli svæða
Samkvæmt húsnæðismarkaðstölum Finans Danmark hefur meðalfermetraverð íbúða í Kaupmannahöfn hækkað úr 22.735 krónum á fyrsta ársfjórðungi 2010 í 61.354 krónur á öðrum ársfjórðungi 2025, sem er 170% hækkun á 15 árum.
Hús í nágrenni höfuðborgarinnar fóru á sama tíma úr 20.934 í 40.645 krónur á fermetra, tæplega 100% hækkun, en hækkunin í Norður-Jótlandi nam einungis 23,5%.
Sagan birtist líka í einstökum eignum á götunni:
Íbúð við Frederik VI’s Allé 10 (138 m²) seldist árið 2012 á 5.250.000 danskar krónur en síðan á 10.000.000 krónur árið 2024 og síðan á 12.075.000 krónur í ár. Samsvarar það um 6.825.000 danskra króna hækkun á 13 árum, eða um 130 milljóna króna aukningu í íslenskum krónum á gengi dagsins.
Frederik VI’s Allé gerði því marga eigendur að milljónamæringum þegar fermetraverð fór yfir 50 þúsund krónur árið 2016. Samkvæmt Børsen virðist þessi litla gata enn setja tóninn á markaði þar sem ný met eru slegin reglulega.
Heimild: Vb.is